Danir tveimur mörkum yfir í hálfleik
Danir eru tveimur mörkum yfir í hálfleik gegn Spánverjum í undanúrslitum á EM í Serbíu eftir að Mikkel Hansen skoraði úr aukaskasti eftir að leiktíminn var liðinn, 12:10. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Niklas Landin, markvörður Dana, hefur varið mjög vel.
Það kom svo ótrúlegur kafli þegar 20 mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Þá minnkuðu Danir muninn í 9:10. Þannig hélst staðan í heilar 7 mínútur og 19 sekúndur eða þar til Danir jöfnuðu metin, 10:10.
Það er auðséð á leikmönnum að þeir eru orðnir dauðþreyttir eftir að hafa spilað sex leiki á tæpum tveimur vikum. Gæðin eru ekki mikil en varnarleikur Spánverja hefur hinsvegar verið mjög góður og sóknir danska liðsins mjög langar. Spánverjar spila framarlega og svokallaða 3 - 2 - 1 vörn og það hefur slegið skyttur Dana út af laginu.
Það kemur svo í ljós hvort Danir ná annað árið í röð að slá Spánverja út í undanúrslitum á stórmóti eins og þeir gerðu á HM í Svíþjóð í fyrra.






