Hlutafjárútboð í vændum hjá Facebook

Mark Zuckerberg. stækka

Mark Zuckerberg. Reuters

Facebook mun væntanlega kynna hlutabréfaútboð í næstu viku þar sem samskiptavefurinn er metinn á um 100 milljarða Bandaríkjadala, 12.333 milljarða króna, samkvæmt frétt bandaríska blaðsins Wall Street Journal í dag.

Samkvæmt heimildum WSJ mun Facebook afhenda bandaríska fjármálaeftirlitinu, Securities and Exchange Commission (SEC), gögn um útboðið jafnvel á miðvikudag.

Herma heimildir blaðsins að safna eigi allt að 10 milljörðum dala í útboðinu sem þýðir að útboðið verður eitt það stærsta í sögunni.

Ef markaðsvirði Facebook er 100 milljarðar dala þá er fyrirtækið álíka verðmætt og skyndibitakeðjan McDonald's sem er metin á 101 milljarð dala. Sem dæmi má nefna að markaðsvirði Boeing-flugvélaframleiðandans er 56 milljarðar dala. Hins vegar er markaðsvirði Apple 415 milljarðar dala og Google 186 milljarðar dala.

Forstjóri Facebook og stofnandi, Mark Zuckerberg, hefur ekki viljað setja Facebook á almennan markað og sagt að hann vildi miklu frekar byggja fyrirtækið upp í stað þess að gera það að almenningshlutafélagi. Undanfarið hefur hann hins vegar orðið mun jákvæðari í að bjóða út hlutafé Facebook í fyrsta sinn. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí


finnur.is