Óveður á Holtavörðuheiði
Hringvegurinn er auður frá Reykjavík upp í Borgarfjörð en annars er víðast hvar hálka á Vesturlandi. Það er óveður á Holtavörðuheiði og eins á norðanverðu Snæfellsnesi. Fróðárheiði er ófær en hálkublettir eru á Útnesvegi.
Hellisheiði er enn lokuð en flestar aðrar aðalleiðir á Suðurlandi eru færar. Þó er þæfingsfærð á Mosfellsheiði og skafrenningur, og sumstaðar er þungfært á fáfarnari sveitavegum. Greiðfært er á Reykjanesbraut en ófært á Suðurstrandarvegi og Krýsuvíkurvegi.
Á Vestfjörðum er vegur lokaður í Raknadalshlíð innan við Patreksfjörð vegna snjóflóðahættu og ófært er á Kleifaheiði.
Ófært er milli Patreksfjarðar og Bíldudals og eins frá Vatnsfirði og austur yfir Klettsháls.
Á Norðurlandi er víðast hvar hált. Flughált er í Langadal og þar er óveður. Eins er flughált á Þverárfjalli og nokkuð víða í Skagafirði.
Hálka eða snjóþekja er á flestum vegum á Austurlandi og Suðausturlandi en varað er við flughálku úr Öræfum og vestur í Vík.






