Reddit hjálpar munaðarleysingjum

Peningunum verður varið í girðingu og þjófavarnir fyrir munaðarleysingjaheimilið. stækka

Peningunum verður varið í girðingu og þjófavarnir fyrir munaðarleysingjaheimilið.

Lesendur vefsíðunnar Reddit tóku sig saman og söfnuðu 65 þúsund Bandaríkjadölum, 8 milljónum króna fyrir munaðarleysingjahemili í Tansaníu á innan við 24 klukkustundum.

Tildrög söfnunarinnar voru þau að ráðist var inn á heimilið sem er illa varið, án girðingar og þjófavarnakerfis. Starfsmaður heimilisins, Omari, særðist illa þegar hann var skorinn með sveðju í andlitið við það að verja heimilið og börnin sem þar dvelja. Alls 35 börn búa á heimilinu á aldrinum 2-17 ára. Ítrekað hefur verið brotist inn í heimilið og í kjölfarið á þessari síðustu árás ákváðu lesendur Reddit að hefja söfnun til kaupa á girðingu og þjófavarnabúnaði til að verja heimilið fyrir innbrotum.

Upphaflega var markið sett á tvö þúsund Bandaríkjadali en eftir 24 stundir höfðu 65 þúsund dalir safnast. Nú hafa munaðarleysingjahælinu verið afhentir peningarnir og girðingin mun rísa á næstu vikum.

Hlekkur á söfnun Reddit.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is