Snjóflóðahætta á Ísafirði og Hnífsdal

Gífurlegt fannfergi er á Vestfjörðum.

Gífurlegt fannfergi er á Vestfjörðum. mbl.is

Lögreglustjórinn á Ísafirði hefur í samráði við Veðurstofu Íslands ákveðið að láta rýma svæði undir Seljalandshlíð á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Einnig bæina  Hraun í Hnífsdal og Höfða við Kirkjubólshlíð.

Áður hafði Veðurstofa Íslands, í samráði við lögreglustjórann á Vestfjörðum, lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu mun fólkið verða flutt til ættingja sinna.

Þá féll snjóflóð fyrir stundu úr Kirkjubólshlíð en talið er að um sé að ræða krapaflóð þar sem hitastig hefur hækkað og talsverð rigning er á svæðinu.

Á Vestfjörðum er núna suðaustan 13-18 m/s, en spáð er að það lægi talsvert í kvöld. Það hvessir hins vegar aftur síðdegis á morgun. Það er slydda eða rigning og talsvert heitt í veðri.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is