Búast má við asahláku síðdegis

stækka

mbl.is/Árni Sæberg

Búast má við asahláku á landinu síðdegis og fram á morgundaginn. Einnig víða hvassir vindstrengir við fjöll í kvöld og nótt, að því er segir á vef Veðurstofu Íslands.

Spáin er svohljóðandi:

Suðaustan 5-13 metrar á sekúndu. Skýjað og súld eða rigning á sunna- og vestanverðu landinu. Hiti 3 til 8 stig. Suðaustan 10-18 og talsverð rigning sunnan- og vestanlands í kvöld og hlýnandi. Dregur úr vindi og úrkomu vestantil á landinu á morgun og fer kólnandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag


finnur.is