Hafa áhyggjur af uppljóstrara

Osama bin Laden. stækka

Osama bin Laden. Reuters

Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segist hafa miklar áhyggjur af pakistönskum lækni sem hefur verið handtekinn fyrir að veita bandarískum yfirvöldum upplýsingar sem leiddu til þess að Osama Bin Laden, fyrrverandi leiðtogi al-Qaeda, var felldur í fyrra.

Læknirinn, sem heitir Shikal Afridi, er sakaður um að hafa stýrt verkefni fyrir bandarísku leyniþjónusta, CIA, í Abbottabad þar sem bin Laden var drepinn. Pakistönsk nefnd leggur til að læknirinn verði ákærður fyrir föðurlandssvik, að því er breska ríkisútvarpið skýrir frá.

Leon Panetta, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, segir í samtali við bandaríska fréttaskýringaþáttinn 60 Minutes að það hafi verið mikil mistök að handtaka manninn. Þetta kemur fram í þæti sem verður sýndur á morgun.

Panetta segir að Afridi hafi veitt bandarískum yfirvöldum afar mikilvægar upplýsingar svo að þau gætu gert áhlaup á bin Laden 2. maí í fyrra.

Læknirinn var handtekinn skömmu eftir aðgerðir Bandaríkjahers í Abbottabad.

Stjórnvöld í Pakistan voru mjög óánægð með að bandarísk yfirvöld skyldu hafa sent hermenn til landsins til að hafa uppi á Bin Laden og voru aðgerðirnar harðlega fordæmdar.

Leon Panetta, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.

Leon Panetta, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is