Heiðar byrjar á móti Chelsea

Heiðar Helguson fagnar marki fyrir QPR gegn Chelsea. stækka

Heiðar Helguson fagnar marki fyrir QPR gegn Chelsea. mbl.is

Heiðar Helguson er í byrjunarliði QPR sem tekur á móti Chelsea í fyrsta leik dagsins í fjórðu umferð ensku bikarkeppninnar. Heiðar skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu þegar liðin áttust við í deildinni í október.

Sá leikur dró dilk á eftir sér en Anton Ferdinand kærði John Terry fyrir kynþáttaníð og er málið enn til rannsóknar. Báðir eru þeir í byrjunarliðunum í dag og menn bíða spenntir eftir því hvort þeir heilsist fyrir leikinn sem hefst á Loftus Road klukkan 12.

QPR: Kenny, Hill, Hall, Mackie, Buzsaky, Barton, Young, Smith, Helguson, Wright-Phillips, Ferdinand. Varamenn: Cerny, Orr, Derry, Hulse, Ephraim, Macheda, Onuoha.

Chelsea: Cech, Ivanovic, Cole, Luiz, Ramires, Torres, Mata, Malouda, Meireles, Sturridge, Terry. Varamenn: Turnbull, Essien, Romeu, Bosingwa, Lukaku, Cahill, Bertrand.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Enski boltinn — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar


finnur.is