Hjálpargögn send til Norður-Kóreu
Mannréttindasinnar reyna að hindra hungursneyð í Norður-Kóreu með sendingu hjálpargagna. Óhefðbundnar leiðir eru notaðar til fyrirbyggja neyðarástand, en síðustu daga hafa sokkar verið sendir yfir landamærin með blöðrum, en hægt er að skipta sokkunum fyrir mat.
Hópur mannréttindasinna frá 10 löndum stendur að baki aðgerðunum. Samkvæmt Reuters-fréttastofunni munu alls 1.000 sokkapör verða send inn í landið sem mun hjálpa sveltandi fjölskyldum í því erfiða ástandi sem þar ríkir. Fyrir eitt par af sokkum er hægt að fá sem jafngildir mánaðarbirgðum af korni í Norður-Kóreu.
Yfirvofandi hungursneyð má að einhverju leyti skýra af gölluðu og óvirku matardreifikerfi landsins, hækkandi matvælaverði og viðskiptahömlum vegna kjarnorkuflaugaáætlana þeirra. Vegna þeirrar stefnu alþjóðasamfélagsins að hunsa neyðarástandið sem ríkir í Norður-Kóreu hafa hópar mannréttindasinna tekið málstaðinn upp á sína arma og reynt að finna leiðir til að svara neyðarkalli íbúa landsins.
Engar líkur eru á sáttum milli Norður- og Suður-Kóreu. Ekki liggja fyrir drög að friðarsamningum en tæknilega hafa ríkin verið í stríði frá því á 6. áratug síðustu aldar.






