Kallar eftir þverpólitískri samstöðu
Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, hvetur þingmenn demókrata og repúblikana til að leggja persónulegan metnað til hliðar og taka höndum saman við að takast á við mikilvæg málefni.
„Við vorum ekki send hingað til að standa í endalausum kosningabaráttum gegn hvert öðru,“ sagði forsetinn í vikulegu ávarpi sínu.
„Við vorum send hingað til að þjóna bandarískum almenningi. Og hann á betra skilið en pattstöðu og leiki.“
Obama vísaði til hótunar Mikes Lee, sem er öldungadeildarþingmaður repúblikana, sem sagði að hann myndi reyna að koma í veg fyrir val forsetans á dómurum á þessu ári.
Lee er afar ósáttur við að Obama hafi útnefnt Richard Cordray sem yfirmann neytendastofnunar. Lee og aðrir repúblikanar halda því fram að forsetinn hafi hunsað ráðleggingar þingsins.






