Skotárás í Malmö
Tveir menn voru skotnir í miðborg Malmö í Svíþjóð í nótt. Mennirnir, sem eru á þrítugsaldri, voru fluttir á sjúkrahús með skotáverka. Þeir eru hins vegar ekki í lífshættu. Einn maður hefur verið handtekinn í tengslum við málið.
Þremenningarnir eru sagðir tengjast glæpahópum.
Lögreglan segir of snemmt að segja nokkuð um það hvort árásin tengist öðrum skotárásum og ofbeldisverkum sem hafa verið framin í borginni nýverið.
Árásin átti sér stað við gatnamót Södergatan og Baltzargatan. Lögreglan segir að málið sé í rannsókn og á þessu stigi hafi menn ekki nákvæmar upplýsingar um hvað gerðist.
Margir lögreglumenn voru á vakt í nágrenninu þegar árásin var gerð um kl. 3.30 að staðartíma. Lögreglunni tókst því að hafa fljótt hendur í hári mannsins sem er grunaður um árásina.
Mennirnir verða yfirheyrðir í dag.






