Spanair gjaldþrota – farþegar strandaglópar

Mynd 1 af 4
Farþegar sem áttu bókað með Spanair voru ekki sáttir þegar þá lá fyrir að öllum ferðum hefði verið aflýst. Reuters

Spænska flugfélagið Spanair er orðið gjaldþrota og hefur það aflýst öllum flugferðum með afar skömmum fyrirvara. Eru fjölmargir farþegar nú strandaglópar á spænskum flugvöllum.

Spanair sendi frá sér yfirlýsingu í gærkvöldi þar sem fram kemur að fjárhagsleg framtíð fyrirtækisins sé í mikilli óvissu. Þar af leiðandi hafi félagið ákveðið að stöðva alla starfsemi í öryggisskyni.

Síðasta vél í áætlunarflugi félagsins lenti í gærkvöldi. Flugfélögin Iberia, Vueling og Easyjet hyggjast aðstoða þá farþega sem komast hvorki lönd né strönd.

Fram kemur í spænskum fjölmiðlum að þetta hafi áhrif á áætlanir um 22.000 farþega um helgina. AFP-fréttastofan segir að þetta hafi ekki fengist staðfest hjá talsmanni Spanair.

Um 200 farþegar söfnuðust saman við afgreiðslu Spanair á flugvellinum í Barcelona í gærkvöldi skömmu eftir að tilkynning barst. Þeir vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið.

Flugvallaryfirvöld á Spáni, AENA, sögðu að starfsemi á Barajas-flugvelli í Madrid og El Prat í Barcelona gengi samkvæmt áætlun. Þar er búið að setja upp sérstaka aðstöðu fyrir farþega sem áttu bókað með Spanair.

„Farþegar koma þangað og önnur félög koma þeim í flug,“ segir talskona AENA.

Hún segir að alls hafi 55 ferðum verið aflýst í Madrid og 54 í Barcelona í dag. Nokkrar flugferðir til viðbótar hafi verið felldar niður til Mallorca og Kanaríeyja.

Spanair segir það leitt að hafa þurft að taka þessa ákvörðun og biður alla farþega aföskunar.

Fyrirtækið var stofnað árið 1986 og hugðist reyna að halda áfram rekstri með því að sameinast Qatar Airways, en ekkert varð úr þeim samruna.  Félagið var um tíma í eigu norræna flugfélagsins SAS, sem seldi það árið 2009. SAS átti þó enn 10,9% hlut og sendi í morgun frá sér afkomuviðvörun og sagði að það myndi afskrifa hlutinn sem ylli 1,7 milljarða sænskra króna tapi í bókhaldi félagsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is