Töluverð hálka víða
Vegagerðin segir að hringvegurinn sé auður frá Reykjavík upp í Borgarfjörð. Hálka sé á Holtavörðuheiði og víða á Vesturlandi. Þrengslin eru opin en Hellisheiði er enn lokuð. Aðrar aðalleiðir á Suðurlandi eru færar. Víða er töluverð hálka og þungfært á örfáum sveitavegum.
Greiðfært er á Reykjanesbraut en ófært á Suðurstrandarvegi og Krýsuvíkurvegi.
Á Vestfjörðum er flughált í Ísafjarðardjúpi og þaðan í Hrútafjörð. Flughált er einnig á Þröskuldum og svo milli Patreksfjarðar og Bíldudals. Annars er víða hálka en þó er ófært frá Vatnsfirði og austur yfir Klettsháls.
Á Norðurlandi er víðast hvar hálka eða hálkublettir en þó sumstaðar flughált eins og t.d. milli Sauðárkróks og Hofsóss en einnig norðaustanlands á Hófaskarði og Hálsum.
Flughált er mjög víða á Austurlandi og einnig á nánast öllu Suðausturlandi.






