Innlent
| mbl
| 28.1.2012
| 7:41
| Uppfært
29.1.2012
20:45
Tveir í haldi vegna heimilisofbeldis
Tveir karlmenn um fertugt eru í haldi lögreglu eftir heimilisofbeldi. Málin tengjast ekki og áttu þau bæði sér stað í austurborginni. Að sögn lögreglunnar komu þau upp með klukkustundar millibili á fjórða og fimmta tímanum í nótt.
Talið er að kona sé handleggsbrotin í öðru málinu en hitt atvikið var ekki eins alvarlegt. Mennirnir voru báðir í annarlegu ástandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






