Innlent
| mbl
| 28.1.2012
| 9:09
| Uppfært
29.1.2012
20:27
Yfirgefnir bílar stoppa ruðning
Ekki er hægt að ljúka við að ryðja Hellisheiði fyrr en eigendur bíla sem þar voru skildir eftir í gær færa þá. Lögreglan á Selfossi vinnur nú að því að ná sambandi við bíleigendurna til að láta þá færa bílana. Sinni þeir því ekki eftir því sem líði á morguninn verði dráttarbílar sendir til að fjarlægja bílana á kostnað eigendanna.
Að sögn lögreglu er búið að sækja eitthvað af þeim bílum sem skildir voru eftir á Hellisheiði í gær. Enn séu þó sjö bílar eftir þar og þar af séu fimm til vandræða.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






