Brutu sér leið inn í íbúðina

Slökkviliðbíll utan við fjölbýlishúsið á Húsavík í dag. stækka

Slökkviliðbíll utan við fjölbýlishúsið á Húsavík í dag. mbl.is/Hafþór

Slökkviliðið á Húsavík var kallað út klukkan 15:15 í dag vegna elds í fjölbýlishúsi í bænum. Eldur hafði komið upp í dýnu í einni af íbúðunum í húsinu og tilkynntu nágrannar um hann. Þeir brutu sér síðan leið inn í íbúðina og komu dýnunni út í gegnum svalir íbúðarinnar að sögn Jóns Ásbergs Salómonssonar, slökkviliðsstjóra.

Engum var meint af að sögn Jóns en ein kona var sofandi í íbúðinni þegar eldurinn kom upp Slökkviliðið kom síðan á staðinn og reykræsti íbúðina en óverulegar skemmdir urðu á henni. Mála þarf upp á nýtt að einhverju leyti að sögn Jóns og einhverjar skemmdir urðu á gólfefnum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is