Í armbeygjukeppni við forsetafrúna
Það var æsispennandi að fylgjast með armbeygjukeppni spjallþáttastjórnandans Ellen Degeneres og Michelle Obama í þætti þeirrar fyrrnefndu í fyrradag. Forsetafrúin vann keppnina, 25-21.
Michelle Obama var í viðtali hjá Degeneres og sagðist æfa í einn og hálfan klukkutíma eldsnemma á hverjum morgni.
„Og fer einn klukkutími í að þjálfa handleggina?“ spurði Degeneres en Obama þykir hafa stælta handleggi. Forsetafrúin hló en sagðist vissulega gera armbeygjur.
„Hvað getur þú gert margar?“ spurði Degeneres þá og sagðist vilja vita hvor þeirra gæti gert fleiri.
„Það fer eftir því hvernig þú ert í bakinu, ég veit að það er þitt veika svæði,“ sagði Obama kokhraust.
Þar með var ljóst að armbeygjukeppni var í uppsiglingu.
Konurnar stóðu upp, rifu sig úr jökkunum og hentu sér á gólfið. Áhorfendur hófu að telja og Degeneres náði 21 armbeygju, móð og másandi. En forsetafrúin hélt áfram og tók 25 stykki.
„Ég hefði vel getað fleiri,“ sagði Obama.
„Ég líka,“ sagði Degeneres. „Ég vildi bara ekki skyggja á sjálfa forsetafrúna.“
Að þessu loknu færði spjalldþáttastjórnandinn gesti sínum gjafir.
„Þetta er handa ykkur hjónunum,“ sagði Degeneres. Obama opnaði pakkann spennt og í ljós komu tveir æfingagallar, með áprentuðu andliti Ellenar Degeneres.






