Helga Margrét nærri sínu besta í hástökki
Frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir hefur lokið keppni í tveimur greinum í fimmtarþraut á alþjóðlegu móti í Tallinn í Eistlandi. Helga Margrét náði sér ekki á strik í 60 metra grindahlaupi, hljóp á 9,03 sekúndum, en stökk yfir 1,74 metra í hástökki.
Þegar Helga Margrét setti Íslandsmet sitt árið 2010 hljóp hún grindahlaupið á 8,86 sekúndum en hún hefur best hlaupið það á 8,69 sekúndum. Í hástökki á hún best 1,77 en hún stökk yfir 1,71 metra þegar hún setti Íslandsmetið.
Enn eru góðar líkur á að Helga Margrét bæti Íslandsmet sitt en hún hefur bætt sig mikið í þeim greinum sem eftir eru; kúluvarpi, langstökki og 800 metra hlaupi.
Helga Margrét fékk 904 stig fyrir grindahlaupið og 903 stig fyrir hástökkið, og er því samtals með 1.807 stig. Hún er í 4. sæti í keppninni en efst er Laura Ikauniece frá Lettlandi með 2.008 stig.






