Tugum flugferða frestað

stækka

mbl.is/Reuters

Um þriðjungi allra flugferða sem áttu að fara um Heathrow flugvöll á morgun hefur verið frestað vegna veðurs. Von er á mikilli snjókomu í London í nótt og er búist við að 15 sm snjór hylji flugbrautirnar. Þá er hætta á mikilli ísingu.

Búist er við enn frekari töfum á flugi og eru farþegar sem bókað áttu flug beðnir að fylgjast vel með á vef flugvallarins og hjá sínum flugfélögum.

Á hverjum degi fara um 180 þúsund farþegar um Heathrow-flugvöll.

Búist er við að samgöngur fari úr skorðum víða á Bretlandi á morgun vegna veðurs.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí


finnur.is