Depardieu leikur Strauss-Kahn

Dominique Strauss-Kahn stækka

Dominique Strauss-Kahn Reuters

Franski leikarinn Gerard Depardieu mun fara með hlutverk Dominiques Strauss-Kahns í kvikmynd sem gerð verður um kynlífshneykslið sem varð til þess að hann sagði af sér sem framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.

Bandaríski leikstjórinn Abel Ferrara mun leikstýra myndinni og Isabelle Adjani fer með hlutverk eiginkonu Strauss-Kahns, Anne Sinclair.

Myndin verður tekin í New York, París og Washington. „Allt eru þetta staðir þar sem völdin eru. Þetta er kvikmynd um þá ríku og valdamiklu,“ segir leikstjórinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí


finnur.is