Gingrich vill leyniaðgerðir

Newt Gingrich. stækka

Newt Gingrich. Reuters

Newt Gingrich, frambjóðandi í forkosningum repúblikana til forsetaembættisins, segir að Bandaríkin ættu að koma Assad Sýrlandsforseta frá völdum með leynimakki. Ekki eigi að beita her Bandaríkjanna í þessum tilgangi.

Þetta sagði Gingrich í sjónvarpsþættinum Face the Nation, sem sendur var út á sjónvarpsstöðinni CBS í kvöld.

„Ég held að við gætum gripið til ýmissa leynilegra aðgerða. Til dæmis að útvega vopn. Við ættum að gera heimsbyggðinni það ljóst að Assad verður að fara frá völdum. Við ættum að geta myndað bandalag með öðrum þjóðum um það,“ sagði Gingrich.

Að minnsta kosti 104 hafa látið lífið í Sýrlandi um helgina í átökum mótmælenda og hers og lögreglu landsins. Mótmælt hefur verið í landinu í 11 mánuði og að minnsta kosti 6000 manns hafa látist.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí


finnur.is