Innlent
| mbl
| 5.2.2012
| 21:57
| Uppfært
22:14
Hálkublettir víða um land
Á Suðurlandi eru hálkublettir á Lyngdalsheiði og á efri hluta Landvegar en annars er greiðfært. Hálkublettir eru víða á Snæfellsnesi og í Dölum en hálka á Bröttubrekku, Holtavörðuheiði og í Svínadal. Snjóþekja er á Fróðárheiði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni
Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Á Norðvesturlandi eru hálkublettir á flestum leiðum í Húnavatnssýslu en hálka á flestum vegum í Skagafirði og á Öxnadalsheiði.
Norðaustanlands er hálka á Víkurskarði og Mývatns- og Möðrudalsöræfum. Einnig er hálka á Tjörnesi, Hálsum og Hófaskarðsleið. Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði en flestar aðrar leiðir eru greiðfærar.
Á Suðausturlandi eru allar helstu leiðir greiðfærar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






