Abbas mun leiða samsteypustjórn Palestínumanna

Mahmoud Abbas, ásamt emírnum af Katar, sjeiknum Hamad bin Khalifa al-Thani, og Khaled Meshaal í ... stækka

Mahmoud Abbas, ásamt emírnum af Katar, sjeiknum Hamad bin Khalifa al-Thani, og Khaled Meshaal í Doha í dag. Reuters

Mahmoud Abbas, leiðtogi heimastjórnar Palestínumanna á Vesturbakkanum, segir að hann muni leiða samsteypustjórn Palestínumanna. Þetta lá fyrir eftir fund sem Abbas átti með Khaled Meshaal, leiðtoga Hamas-samtakanna.

Fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins að bráðabirgðastjórn Palestínu sé að undirbúa kosningar á Vesturbakkanaum og Gaza-svæðinu.

Abbas og Meshaal hafa fundað í Katar í tengslum við samkomulag sem náðist um sættir í apríl í fyrra. Einnig hefur verið rætt um hver eigi að leiða stjórnina.

Tilgangur samkomulagsins var að binda enda á það fyrirkomulag sem hefur verið í gildi undanfarin fjögur ár, þ.e. að tvær stjórnir séu við völd. Hamas-liðar hafa stjórnað Gaza á meðan heimastjórn Palestínumanna hefur ráðið ríkjum á Vesturbakkanum.

Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefur gagnrýnt yfirlýsingu Abbas. Netanyahu segir að með samkomulagi sínu við Hamas hafi Abbas ákveðið að yfirgefa brautina sem mun leiða til friðar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí


finnur.is