Ætla að berjast á móti hækkuninni
Hiti var í hesthúsaeigendum á fundi sem haldinn var í félagsheimili Hestamannafélagsins Fáks nú í kvöld en fundurinn var upplýsandi og málefnalegur, að sögn Rúnars Sigurðssonar, starfandi formanns félagsins.
Efni fundarins var hækkun á fasteignagjöldum hesthúsa í Reyjavíkurborg en hesthúsaeigendur segja hana ógna hestamennsku í þéttbýlinu. Við hækkunina fara fasteignagjöld á meðaleign úr 16 þúsund krónum í 134 þúsund krónur á ári.
Sigurður Björn Blöndal mætti á fundinn fyrir hönd borgaryfirvalda og útskýrði afstöðu þeirra. Hann sagði vilja vera til þess að bakka með hækkunina en fara yrði að lögum og reglum.
Borgaryfirvöld hafa sent Alþingi bréf þar sem óskað er eftir breytingu á fasteignalögum þannig að hesthús verði sérstaklega tiltekin og sett í sama skattþrep og annað frístundahúsnæði, á borð við sumarhús.
Rúnar segir hesthúsaeigendur ætla að berjast fyrir því að ekki verði af hækkuninni og munu forsvarsmenn þeirra funda með fulltrúum frá innanríkisráðuneytinu á miðvikudag. Einnig verður málið tekið upp í borgarráði á fimmtudag.






