Afskrift Orkuveitunni í hag

Orkuveitan. stækka

Orkuveitan. mbl.is/Árni Sæberg

Dómsátt sem gengið var frá á milli Orkuveitu Reykjavíkur og Álftaness felur í sér um 30% afskrift af kröfu OR. Engu að síður telur fyrirtækið dómsáttina sér í hag.

Eins og mbl.is greindi frá seint í síðasta mánuði náðist sátt í málinu undir lok ársins 2011. Málið nær til ársins 2007 en í janúar það ár eignaðist Orkuveita Reykjavíkur fráveitu Álftaness.

Árið 2009 urðu hins vegar vanskil á greiðslum sveitarfélagsins til OR og var upphæðin komin upp í 90 milljónir króna í árslok 2010. Í frétt á vef Orkuveitunnar segir að Álftanes hafi innheimt fráveitugjald af íbúum en það ekki runnið til OR. Fór svo að Orkuveitan rifti samningi um kaup á veitunni og hætti afskiptum af rekstri hennar í ársbyrjun 2011.

Dómsáttin felur í sér að Álftanes greiddi 30 milljónir króna í desember síðastliðnum og greiðir aðrar 30 milljónir í maí næstkomandi. Þar með eignast Álftanes fráveituna að nýju. út af borðinu standa 30 milljónir sem verða afskrifaðar. Orkuveitan segir afskriftarhlutfallið sambærilegt og aðrir kröfuhafar hafi samþykkt við fjárhagslega endurskipulagningu Álftaness.

Þá segir að Orkuveitan meti það sem svo, að dómsáttin sé fyrirtækinu í hag, enda séu miklar fjárfestingar framundan í fráveitu Álftaness sem hefðu að óbreyttu leitt til tapreksturs á veitunni um langa framtíð.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is