Alþingi fjallar um Skráargatið

stækka

mbl.is/Kristinn

Fyrir Alþingi liggur nú þingsályktunartillaga þess efnis að hér verði tekið upp hið norræna hollustumerki Skráargatið en það gefur til kynna að vara merkt því sé sú hollasta í sínum flokki.

Fjölmargir hafa talað fyrir innleiðingu Skráargatsins en meðal þeirra má nefna Neytendasamtökin og Landlæknisembættið, að því er fram kemur í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

„Markmið Skráargatsins er að leiða neytendur að hollum matvælum. Þetta er gæðastimpill og matvælaiðnaður þarf að aðlagast skilyrðum en ekki öfugt,“ segir Zulema Sullca, sérfræðingur hjá Matvælastofnun.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is