Eldur í húsi við Eikjuvog

Slökkviliðsmenn að störfum við Eikjuvog. stækka

Slökkviliðsmenn að störfum við Eikjuvog. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Eldur kom upp í húsi við Eikjuvog í Reykjavík um kl. 19.40 í kvöld. Slökkvilið fór strax á staðinn og hefur náð tökum á eldinum. Íbúar voru heima er eldurinn blossaði upp en lögreglan hjálpaði þeim út úr húsinu áður en slökkvilið kom á staðinn.

Tilkynning barst um reyk í herbergi í húsi við Eikjuvog í Reykjavík kl. 19.40. Nokkrum mínútum síðar barst tilkynning um að eldur væri kominn upp.

Slökkvilið náði fljótt tökum á eldinum og er nú að reykræsta. Tveir dælubílar og þrír sjúkrabílar voru sendir á staðinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is