Hestamenn ræða hækkun á álagningu

Fundurinn er haldinn í félagsheimili Fáks. stækka

Fundurinn er haldinn í félagsheimili Fáks. mbl.is/Ómar

Hestamannafélagið Fákur stendur fyrir fundi þar sem rætt er um hækkun á álagningu fasteignagjalda á hesthúsum í Reykjavík. Fundurinn hófst kl. 18:30 og fer fram í félagsheimili Fáks. Um 200 manns voru á fundinum er ljósmyndari mbl.is var á staðnum og enn streymdi þá fólk að.

Allir hesthúseigendur voru hvattir til að mæta sem og aðrir sem eiga hagsmuna að gæta. Þá voru fulltrúar Reykjavíkurborgar boðnir á fundinn.

Borgaryfirvöld ákváðu um áramótin að hækka fasteignagjöld á hesthús í þéttbýli til samræmis við úrskurð yfirfasteignamatsnefndar, þess efnis að skattleggja bæri hesthús sem atvinnuhúsnæði en ekki frístundahúsnæði eins og sumarhús. Hafði þetta í för með sér að fasteignagjöld fyrir meðalstórt hesthús hækkuðu úr 16 þúsund krónum í 134 þúsund kr.

Telur borgin úrskurðinn ótvíræðan, en í fasteignalögum er hvergi talað sérstaklega um hesthús og gera þurfi greinarmun á atvinnustarfsemi í hesthúsum og frístundastarfi hestamanna.

„Ég tel úrskurðinn leiða af sér óhóflegar hækkanir á gjöldum fólks sem er með hesta í frístundaskyni og við munum taka erindi Reykjavíkurborgar til umfjöllunar á næsta fundi nefndarinnar,“ sagði Helgi Hjörvar, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, í samtali við Morgunblaðið á laugardag um erindi Reykjavíkurborgar vegna álagningar fasteignaskatts á hesthúsaeigendur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is