Máli Jóns vísað frá

Jón Magnússon. stækka

Jón Magnússon.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað frá dómi kröfu Jóns Magnússonar, fyrrverandi alþingismanns, um að viðurkennt verði að ákvörðun stjórnar Persónuverndar um heimildir Seðlabankans til vinnslu persónuupplýsinga í þágu gjaldeyriseftirlits sé ólögmæt.

Niðurstaða Persónuverndar í umræddu máli var sú að vinnsla Seðlabanka Íslands á persónuupplýsingum í þágu gjaldeyriseftirlits styddist við fullnægjandi lagaheimildir, en bankanum bæri að senda Persónuvernd tilkynningu um vinnsluna. Þá var mælt fyrir um að bankinn skyldi gera úttekt á öryggi við eyðingu þeirra persónuupplýsinga sem bankinn ynni með vegna umrædds eftirlits, þ.e. öðrum en þeim sem lægju til grundvallar niðurstöðum rannsókna á tilteknum meintum brotum.

Í niðurstöðu dómsins segir að einungis sé hægt að fá viðurkenningardóm fyrir kröfu þegar viðkomandi hafi lögvarða hagsmuni af því að skorið sé úr um tilvist réttinda eða réttarsambands.
Jón byggði á því að hann ætti í málinu lögvarða hagsmuni sem borgari í lýðfrjálsu landi og einnig sem kaupandi vöru og þjónustu erlendis frá með greiðslukortum eða sem ferðamaður.

Héraðsdómur segir í dómi sínum, að ekki verði séð að Jón geti haft einstaklega, beina og lögvarða hagsmuni af úrlausn dómkröfu sinnar. „Þannig er ljóst að engin úrlausn fæst um heimildir Seðlabanka Íslands til öflunar og vinnslu persónuupplýsinga í þágu gjaldeyriseftirlits, hvorki almennt eða hvað stefnanda varðar sérstaklega, þótt leyst yrði efnislega úr viðurkenningarkröfu stefnanda.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is