Miklar skemmdir í húsinu
Miklar skemmdir urðu í einbýlishúsi við Eikjuvog í Reykjavík vegna elds og reyks, en eldur kviknaði í húsinu á áttunda tímanum í kvöld. Að sögn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) kviknaði eldur í einu herbergja hússins en eldsupptök eru ókunn.
Varðstjóri hjá SHS segir að gífurlegur eldur hafi logað í herberginu og skemmdirnar þar af leiðandi verið afar miklar. Íbúarnir, sem eru eldri hjón, náðu að loka herberginu og koma þannig í veg fyrir að eldurinn næði að breiðast út um húsið. Þeir komust sjálfir út og sakaði ekki.
Aftur á móti lagði mikinn reyk um húsið og eru skemmdir af völdum hans miklar. Ljóst er að húsráðendur munu ekki dvelja heima hjá sér í nótt. Þá varð eitthvert vatnstjón vegna slökkvistarfsins.
Tilkynning barst SHS um kl. 19:40 í kvöld og um 10 mínútum síðar var slökkviliðið mætt á staðinn. Alls tóku um 10 slökkviliðsmenn þátt í aðgerðunum og lauk slökkvistarfi um kl. 21. Vel gekk að ráða niðurlögum eldsins.






