Minna ávaxtað erlendis
„Menn vilja halda vel utan um erlendu eignina sína. Hún er nú komin niður í 24% en talið hefur verið æskilegt að hún sé vel yfir 30%,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, um erlendar eignir íslensku lífeyrissjóðanna.
Hann segir í umfjöllun um málefni lífeyrissjóðanna í Morgunblaðinu í dag, að innlendi fjármálamarkaðurinn sé enn grynnri en hann var fyrir efnahagshrun. Þá er ekki hægt að stofna til nýrra viðskipta erlendis vegna gjaldeyrishaftanna. Eina undantekningin er endurgreiðslur úr erlendum framtakssjóðum sem lífeyrissjóðirnir keyptu í fyrir hrun. Þær má nota til að standa við gerða samninga um greiðslur í erlenda framtakssjóði.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, benti á það í samtali við mbl.is að þrátt fyrir mikið tap lífeyrissjóðanna hefðu erlendar eignir þeirra virkað til mótvægis.
Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarmanna, segir ástæðu til að hafa áhyggjur af þrengri fjárfestingamöguleikum lífeyrissjóðanna. Gjaldeyrishöftin þrengi þá og tækifærin hafi minnkað.






