Morðið „ánægjuleg reynsla“

stækka

mbl.is

Unglingsstúlka sem er fyrir rétti í Bandaríkjunum fyrir að hafa myrt 9 ára stúlku með hrottafengnum hætti, skrifaði í dagbók að morðið hefði verið „ánægjuleg“ reynsla. Að því loknu fór hún hlæjandi til kirkju.

Lesið var upphátt úr dagbók morðingjans Alyssu Bustamante við réttarhöldin í Jefferson í  Missouri-ríki í dag. Bustamante hefur játað að hafa kyrkt og skorið nágrannastúlku sína á háls og verið dæmd fyrir verknaðinn. Fórnarlambið hét Elizabeth Olten og var aðeins níu ára gömul.

Bustamante sem er átján ára gömul, sat hljóð undir dagbókarlestrinum en dómurinn hefur það hlutverk að ákveða hvort hún fari í lífstíðarfangelsi vegna morðsins eða hljóti styttri dóm, í  það minnsta tíu ár. Morðið framdi hún árið 2009, þá aðeins fimmtán ára gömul.

Rithandarsérfræðingur var fenginn til að skoða dagbókina en Bustamante hafði reynt að krota yfir dagbókarfærsluna.

Hann las svo upphátt úr dagbókinni: „Ég var að drepa manneskju, fjandinn hafi það. Ég kyrkti hana, skar hana á háls og stakk hana og nú er hún dáin. Ég veit ekki hvernig mér líður. En þetta var ótrúlegt. Um leið og maður jafnar sig á að hafa getað gert eitthvað þessu líkt, er þetta frekar ánægjuleg reynsla. Ég er samt taugaóstyrk og skjálfandi núna. OK, en ég verð að fara í kirkju. LOL,“ skrifar Bustamante, en LOL er skammstöfun fyrir „laughing out loud“ eða „ég skelli upp úr.“

Móðir fórnarlambsins kom fyrir réttinn og sagði að dóttir sín hefði verið lífsglöð, lítil stúlka sem hefði fallið fyrir hendi skrímslis.

Þegar málið kom fyrst fyrir dóm árið 2009 sagði lögreglumaður sem yfirheyrði Bustamante að hún hefði drepið stúlkuna til þess eins að komast að því hvernig væri að fremja morð.

Verjendur Bustamante segja hana hafa átt mjög erfiða barnæsku og að samkvæmt dagbókinni hefðu sjálfsvígshugsanir sótt á hana.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí


finnur.is