Óeirðir eftir tapleik

Óeirðir brutust út við háskólann í Massachusetts í nótt eftir að úrslit í leiknum um Ofurskálina lágu fyrir. Nemendur við skólann voru ósáttir við tap sinna manna í ruðningsliðinu New England Patriots, en liðið atti kappi við New York Giants.

Um 1.500 nemendur söfnuðust saman á aðaltorgi skólans og þar létu þeir öllum illum látum. Óeirðalögreglumenn voru kallaðir á staðinn og þegar nemendurnir neituðu að yfirgefa svæðið notuðu þeir m.a. leiftur- og reyksprengjur til að dreifa mannfjöldanum.

Þrátt fyrir að slagsmál hafi brotist út hlaut enginn alvarlega áverka. Þá voru skemmdir minniháttar að sögn talsmanns skólans.

Alls voru 14 handteknir, þar af 13 háskólanemar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí


finnur.is