Innlent
| mbl
| 6.2.2012
| 23:49
| Uppfært
7.2.2012
16:03
Samdráttur í sölu áfengis
Sala á áfengi dróst saman um 2,3% í janúar sl. miðað við sama tímabil í fyrra. Í lítrum talið var munurinn 25 þúsund lítrar. Samdráttur í sölu er talsvert meiri í bjór en léttvíni. Þannig dróst sala á bjór saman um 3% á meðan rauðvín og hvítvín dregst saman minna en 1%.
Þetta kemur fram á vef Vínbúðarinnar.
Fram kemur að ef litið sé lengra aftur í tímann og salan í janúar í ár borin saman við söluna fyrir tveimur árum, þ.e. árið 2010, þá seldust tæplega 8% færri lítrar í ár.
Segir að ókryddað brennivín og blandaðir drykkir hafi dregist verulega saman í sölu. Athygli veki að nú sé selt tæplega 5% meira af hvítvíni en fyrir tveimur árum en minni munur sé á sölu rauðvíns. Nú sé selt tæplega 1% meira af rauðvíni en árið 2010.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






