Sekur en brotin fyrnd

stækka

Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Héraðsdómur Vesturlands hefur sýknað karlmann af ákæru um kynferðisbrot gegn barnungri stúlku, frænku sinni. Dómurinn taldi að maðurinn hefði brotið gegn stúlkunni en vísaði málinu frá þar sem sök hans er fyrnd.

Maðurinn var ákærður fyrir að hafa margoft á tímabilinu frá maí til september á árunum 1990 til 1996, þegar stúlkan var á aldrinum 6 til 13 ára, brotið gegn stúlkunni. Brotin áttu sér stað á heimili stúlkunnar en þar fékk hann að gista eftir skemmtanahald. Um er að ræða föðurbróður stúlkunnar.

Í niðurstöðu dómsins segir að ekki þyki varhugavert að slá því föstu að maðurinn hafi gerst sekur um þá háttsemi sem hann er ákærður fyrir og rétt sé færð til refsiákvæða í ákæru.

Hins vegar gat dómurinn ekki litið framhjá því, að þegar maðurinn braut síðast gegn stúlkunni var refsing fyrir brotin allt að 12 árum. Samkvæmt þágildandi greinum laga fyrntist sök fyrir brot mannsins á 15 árum. Þá segir: „Í samræmi við framangreinda niðurstöðu dómsins verður að telja að fyrningarfrestur hafi byrjað að líða 17. júní 1995 og var sök því fyrnd þann 17. júní 2010. Hinn 22. nóvember 2010 var haft símasamband við ákærða og honum kynnt framkomin kæra brotaþola. Hann gaf síðan skýrslu hjá lögreglu 14. desember sama ár. Samkvæmt 4. mgr. 82. gr. almennra hegningarlaga rofnar fyrningarfrestur þegar rannsókn hefst gegn manni sem sökunaut fyrir rétti eða lögreglustjóra. Þegar þessar aðgerðir gegn ákærða hófust var sök hans fyrnd samkvæmt framansögðu. Verður því ekki hjá því komist að sýkna hann af öllum kröfum ákæruvaldsins í máli þessu.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is