Sex fá vinnu við álgjallið

Starfsemi mun hefjast í verksmiðjunni snemma sumars. stækka

Starfsemi mun hefjast í verksmiðjunni snemma sumars. mbl.is/ÞÖK

Á Grundartanga rís nú verksmiðja þar sem til stendur að framleiða ál úr gjalli sem fellur til við framleiðslu hjá álfyrirtækjunum.

Húsið sem verið er að reisa er um 1.000 fermetrar og verða starfsmenn sex til að byrja með en eigandi fyrirtækisins Kratusar ehf., sem stendur að verksmiðjunni, segir þetta aðeins fyrsta áfangann.

„Það falla til í álverunum eitthvað um 10.000 tonn af gjalli á ári og sum þeirra senda það úr landi til endurvinnslu. Það sem við erum að gera er að sækja það heim,“ segir Valdimar Jónasson í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is