Stakk 10 ára stúlku í hálsinn

Fjölmennt lögreglulið í Svíþjóð leitar manns sem stakk 10 ára gamla stúlku í hálsinn. stækka

Fjölmennt lögreglulið í Svíþjóð leitar manns sem stakk 10 ára gamla stúlku í hálsinn. norden.org

Tíu ára gömul stúlka var stungin í hálsinn á skólalóð í úthverfinu Angered, norðaustur af Gautaborg í Svíþjóð, í morgun. Stúlkan er illa særð og leitar fjölmennt lögreglulið árásarmannsins.

Að sögn Dagens Nyheter er talið að karlmaður á þrítugsaldri hafi ráðist á stúlkuna. Hún var flutt á Sahlgrenska sjúkrahúsið með hnífinn í hálsinum. Sænska lögreglan segir að stúlkan sé illa særð en þó ekki í lífshættu. Hún gat lýst árásarmanninum og kannaðist að sögn ekki við að hafa nokkurn tíma séð hann áður.

Lögreglan útilokar þó ekki að árásarmaðurinn tengist stúlkunni með einhverjum hætti þótt hún hafi ekki þekkt hann. Dagens Nyheter hefur eftir Björn Blixer, talsmanni lögreglu, að hafi árásin verið algjörlega tilviljanakennd og tengsl mannsins við fjölskylduna engin geri það rannsóknina mun erfiðari.

„Geri maður slíka árás einu sinni er allt eins líklegt að hann geri það aftur.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 25. maí


finnur.is