Þormóður tapaði fyrir heimamanni í París

Þormóður Jónsson. stækka

Þormóður Jónsson. mbl.is/Brynjar Gauti

Þormóður Árni Jónsson, júdókappi úr Júdófélagi Reykjavíkur, tók þátt í sterku alþjóðlegu móti í París um helgina. Þormóður varð að sætta sig við að falla úr keppni strax í fyrstu umferð en hann mætti heimamanninum Mathieu Thorel. Frakkanum gekk vel í framhaldinu og sló hann alls út þrjá andstæðinga og hafnaði í 5. sæti í mótinu. Thorel var fyrir mótið í 52. sæti á heimslistanum í þungavigt en Þormóður í því 56. og því stutt á milli þeirra.

Eins og staða Þormóðs á heimslistanum gefur til kynna á hann góða möguleika á að vinna sér sæti á Ólympíuleikunum í Lundúnum í sumar en hann keppti á síðustu leikum í Peking fyrir fjórum árum.

Þormóður verður á faraldsfæti á næstunni og mun keppa á fleiri mótum erlendis, meðal annars heimsbikarmóti í Tékklandi. kris@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is