Þriggja milljarða ávinningur
Sögueyjan, verkefni sem tók þátt í Bókasýningunni í Frankfurt í fyrra sem sérstakt heiðursverkefni, fékk gríðarlega fjölmiðlaumfjöllun þar í landi. Verkefnið kom fyrir í nærri eitt þúsund útvarpsþáttum, sjónvarpsinnslögum, blaðagreinum eða greinum í viðurkenndum vefmiðlum þar sem fjallað var um Ísland og íslenskar bókmenntir.
„Það samsvarar því að þrisvar sinnum á dag allt árið í fyrra hafi Ísland komið fyrir í þýskum fjölmiðlum. Í þessari samantekt eru minni miðlar á borð við héraðsfréttablöð og svæðisútvörp ekki taldir með og ljóst að umfjöllunin var mun meiri í raun og veru,“ segir í tilkynningu frá verkefninu.
„Almannatengslafyrirtækið Projekt2508, sem sérhæfir sig í menningartengdum verkefnum og hélt utan um kynningarmál Sögueyjunnar í Þýskalandi, tók saman efnið og lagði um leið mat á verðgildi umfjöllunarinnar með viðurkenndum aðferðum. Samanlagt verðgildi nam um það bil 18,5 milljónum evra sem samsvarar þremur milljörðum íslenskra króna. Þess má geta að heildarframlag ríkissjóðs til Sögueyjunnar nam 300 milljónum króna sem dreifðist á þrjú ár.“
Í tilkynningunni segir jafnframt að Sögueyjan hafi lagt mikla áherslu á góð tengsl við þýska fjölmiðla í aðdraganda Bókasýningarinnar. „Hátt í hundrað blaðamenn frá hinum þýskumælandi löndum komu hingað til lands í fyrra og komu margir þeirra á eigin vegum en aðrir á vegum Sögueyjunnar eða þýskra bókforlaga. Sjaldan hefur íslensk menning fengið viðlíka kynningu á erlendri grundu,“ segir að lokum í tilkynningunni.






