Valda sálarkvölum
Árásir geta haft alvarlegar sálrænar afleiðingar. Þær geta verið langvarandi og ekki tekst öllum að jafna sig. mbl.is/Kristinn
Eitt þungt hnefahögg getur dregið mann til dauða. Líkamlegir áverkar eftir alvarlega líkamsárás eða nauðgun geta gróið en misjafnt er hvernig fólki tekst að takast á við hið sálræna áfall sem þeim fylgir. Sumir þróa með sér áfallastreituröskun sem getur haft gríðarleg áhrif á líf viðkomandi.
Í síðustu viku voru kveðnir upp tveir dómar þar sem áfallastreituröskun kom við sögu. Annars vegar í dómi vegna nauðgunar sumarið 2010 en hins vegar í dómi vegna alvarlegrar líkamsárásar árið 2006.
Bæði fórnarlömbin fengu áfallastreituröskun í kjölfar árásanna. Unga konan sem áður hafði verið opin og skemmtileg varð grátgjörn og fékkst ekki út úr herbergi sínu. Ungi karlmaðurinn sem ráðist var á þjáist af ýmsum andlegum kvillum og er árásin talin hafa verið kveikjan að erfiðleikum hans, að því er fram kemur í umfjöllun um þessi mál í Morgunblaðinu í dag.
„Áföll geta haft hræðilegar afleiðingar,“ segir dr. Berglind Guðmundsdóttir, sem er sérfræðingur í greiningu og meðferð við áfallastreitu, í blaðinu.






