Vilja gegnsæja battavelli
Skóla- og frístundaráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna í Reykjavík krefjast þess að við endurnýjun íþróttavalla á skólalóðum verði tryggt að veggir umhverfis þá séu úr gegnsæju efni. Erfitt geti verið að fylgjast með völlunum og hætta á að þar þrífist óæskileg hegðun.
Umræða um þetta mál fór fram á fundi skóla- og frístundaráðs borgarinnar nýverið. Í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna segir að svonefndir battavellir séu með vinsælustu stöðum á skólalóðum en jafnframt þeir staðir sem hvað erfiðast er að fylgjast með þar sem þeir séu umluktir ógegnsæjum timburveggjum. Því sé ákveðin hætta á að þar geti þrifist einelti og önnur óæskileg hegðun. Af þessum sökum fara fulltrúarnir fram á að framvegis verði notað ógegnsætt efni í veggi battavalla.
Jafnframt var rætt um lagningu gervigrasvalla við tvo skóla í Reykjavík og fögnuðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna þeim áformum. Hins vegar gagnrýndu þeir harðlega að ekki hefði verið lagður gervigrasvöllur í Vesturbæ. Það hefði tafist árum saman og fullnægjandi skýringar ekki fengist. „Enn einu sinni skal bent á að Vesturbærinn er nú eina hverfi borgarinnar þar sem enginn battavöllur er á skólalóð og er löngu orðið tímabært að bætt sé úr því. Í nokkrum hverfum eru nú komnir battavellir á allar skólalóðir og önnur hverfi eru langt komin. Í lok síðasta kjörtímabils höfðu verið lögð drög að því að bætt yrði úr slíkum skorti á battavöllum við skóla í Vesturbænum á árinu 2010 en eftir að nýr meirihluti tók við var því miður horfið frá þeim fyrirætlunum.“






