Innlent
| Morgunblaðið
| 7.2.2012
| 5:30
Breytingar á dælingu óæskilegar
„Þetta er mjög virkt skjálftasvæði og í raun eldvirkt svæði,“ segir Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur (OR), um svæðið við Hellisheiðarvirkjun.
Ráðgjafahópur OR er nú að skoða jarðskjálftavirkni á svæðinu. Urðu skjálftahrinur í Hellisheiði á liðnu hausti í kjölfar niðurdælingar vatns frá Hellisheiðarvirkjun. Þá urðu allt að fjögurra stiga jarðskjálftar sem fundust í Hveragerði og á höfuðborgarsvæðinu. Á fjórða tug smáskjálfta varð þar um síðustu helgi.
Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir Bjarni að ráðgjafahópurinn hafi sagt að allar breytingar á niðurdælingu væru óæskilegar. Þyrfti að breyta dælingunni ætti það að gerast hægt. Hann sagði reynsluna hafa kennt þeim að dæla hægt og í þrepum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






