Innlent
| Morgunblaðið
| 7.2.2012
| 5:30
Vafi um lögmæti fjárfestinga lífeyrissjóða
Nefndin, sem rannsakaði fjárfestingar og starfsemi lífeyrissjóða, telur að fjárfestingar í sérstökum tegundum skuldabréfa, m.a. víkjandi og lánshæfistengdum bréfum, hafi verið hæpnar.
Þær hafi jafnvel ekki verið í anda laga um lífeyrissjóði og ekki samræmst hlutverki sjóðanna.
Tekin eru dæmi af þátttöku í skuldabréfaútboði Glitnis í mars 2008 og milligöngu Landsbankans í útgáfu franska bankans Société Generale á baktryggðum skuldabréfum árin 2004 og 2005. Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag kemur fram, að nefndin telur leika vafa á að lagaleg skilyrði hafi verið fyrir hendi hjá lífeyrissjóðunum til þátttöku í útgáfu á bréfum franska bankans.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






