Beinverkir og vanlíðan í öndunarfærum

Inflúensan hefur lagt marga landsmenn í rúmið.

Inflúensan hefur lagt marga landsmenn í rúmið. Sverrir Vilhelmsson

Inflúensufaraldur herjar nú á landsmenn. Um er að ræða inflúensu af stofninum H3N2 og þeir sem sýkjast eru yfirleitt með hita í 3-4 daga. 

„Inflúensan hefur verið í gangi í smátíma og virðist vera á nákvæmlega sama tíma og í fyrra,“ segir Þórólfur Guðnason, yfirlæknir hjá sóttvarnarlækni. „Fólk smitast með úðasmiti og snertismiti og það tekur stuttan tíma að verða veikur, yfirleitt finnur fólk fyrir einkennum 2-3 dögum eftir smit.“

Þórólfur segir að fólk finni fyrir háum hita, beinverkjum, vanlíðan í öndunarfærum og særindum í hálsi. Að auki geti börn fengið magaóþægindi og niðurgang. 

„Flestir eru með hita í 3-4 daga, sumir lengur. En svo getur fólk fundið fyrir einkennum í öndunarfærum lengur,“ segir Þórólfur. Hann segir dæmi þess að fólk hafi fengið lungnabólgu og að ung börn hafi fengið eyrnabólgur upp úr flensunni. „Ég veit samt ekki til þess að neinn hafi verið lagður inn vegna flensunnar í ár.“

Alltaf stór hluti þjóðarinnar sem sýkist

Hann segir að alltaf sé nokkuð stór hluti landsmanna sem leggst í rúmið vegna flensu, en hefur ekki tölur handbærar um það, því að aðeins hluti tilfella séu skráð. „En það er alltaf góður hluti þjóðarinnar sem sýkist, sér í lagi þeir sem ekki fá bólusetningu.“

Að sögn Þórólfs eru seldir um 50 þúsund skammtar af bóluefni gegn inflúensu á hverju ári, en það gefi ekki rétta mynd af því hversu margir fái slíkar bólusetningar. Hann segir bólusetningar veita 70 - 90% vörn gegn þeirri inflúensu sem bólusett er fyrir, en veikist fólk geti bólusetningin gert veikindin vægari. „Málið er, að núna eru a.m.k. 4-5 aðrar veirusýkingar í öndunarfærum að ganga og það er bólusett við einni.“

Þórólfur segir inflúensulyf geta virkað með ágætum séu þau tekin snemma í sjúkdómsferlinu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is