Krafðist að dómari viki vegna óvildar föður

Hæstiréttur stækka

Hæstiréttur mbl.is / Hjörtur

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem kröfu manns um að dómari viki sæti var hafnað. Maðurinn byggði kröfu sína á meintri óvild látins föður dómara í garð látins föður stefnda.

Í úrskurði héraðsdóms segir að maðurinn vísaði til bréfs ritað af aldraðri móður sinni, þar sem borið er á föður dómarans, að hann hafi í störfum sínum fyrir rúmlega þrjátíu árum, bæði sem lögmaður og síðar sem Gjaldheimtustjóri í Reykjavík ofsótt látinn föður stefnda.

Dómari í málinu, Herdís Þorvaldsdóttir, sagðist hvorki þekkja til mannsins, fjölskyldu hans eða þess illvilja sem lýst er í bréfinu. „Málatilbúnaður sem þessi hefur því ekki áhrif á hæfi dómarans til þess að fara með málið, enda snertir hann hvorki dómarann né störf hans.“

Fyrir Hæstarétti voru lögð fram ýmis gögn frá árunum 1981 til 1984 svo og úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur 23. febrúar 1994, en gögn þessi, varða rannsókn á ætluðu auðgunarbroti föður mannsins.

Rétturinn taldi gögnin enga þýðingu hafa við úrlausn málsins, og vísaði til forsendna héraðsdóms.

Málið sem um ræðir er einkamál Landsbankans á hendur manninum. Ekki er greint frá því hvaða kröfur eru gerðar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær


finnur.is