„Þetta er hræðilegt, ég er í áfalli“
„Þetta er hræðilegt, ég er í áfalli,“ segir Guðrún Helga Theódórsdóttir, eigandi verslunarinnar Lauru Ashley í Faxafeni í Reykjavík, en brotist var inn í verslunina í nótt og þaðan stolið öllum skartgripum, töskum, barnafatnaði og fleiru.
Guðrún segir allt á rúi og stúi í versluninni. Þjófarnir hafi brotið sér leið inn um hurð sem áður var inngangur að versluninni en er ekki notuð í dag. Þjófavarnarkerfi er í hluta fyrirtækisins en ekki á þeim stað þar sem þjófarnir brutust inn.
„Það var stolið alveg hellingi af vörum,“ segir Guðrún, þar á meðal öllum skartgripunum en þeir eru úr silfri og því verðmætir. Hún segir ekki búið að meta fjárhagslegt tjón en lögregla og tryggingafélagið hafi verið á staðnum í dag.
Í dag hefur verið lokað í Lauru Ashley enda verið að hreinsa til eftir þjófana. „Við vonumst til að geta haft verslunina opna á morgun og erum að setja upp þjófavarnarkerfi í allri búðinni,“ segir Guðrún. „Við erum sumsé að gera ráðstafanir til að koma í veg fyrir að svona lagað endurtaki sig.“








