17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló
Sautján kýr í Eyjafirði og Suður-Þingeyjarsýslu náði því marki í fyrra að mjólka yfir 10 þúsund kíló, en árið á undan voru þær aðeins fimm, segir í frétt norðlenska blaðsins Vikudags.
Þetta kemur fram í niðurstöðum afurðaskýrslna í nautgriparækt fyrir árið 2011. Alls komu til uppgjörs skýrslur frá 96 búum í Eyjafirði og 57 í Suður-Þingeyjarsýslu.
Fjöldi svokallaðra árskúa í Eyjafiði var 4.656,7 og 1.409,8 í Suður-Þingeyjarsýslu á síðasta ári. Fækkun var á báðum svæðum frá árinu 2010. Meðalbústærð er 48,5 árskýr í Eyjafirði, en 24,7 í S-Þingeyjarsýslu. Meðalafurðir eftir árskú í Eyjafirði reyndust vera 5.410 kg, sem er hækkun um 177 kg og í S-Þingeyjarsýslu 5443 kg og hafði hækkað frá fyrra ári um 120 kg.
Þegar horft er á allt landið er meðalbústærð 38,5 árskýr, flestar í Eyjafirði eða 48,5 kýr eins og fyrr segir en fæstar í S-Þingeyjarsýslu, segir í frétt Vikudags.






