Innlent
| mbl
| 12.2.2012
| 20:52
Magnað myrkur á Vetrarhátíð
Hallgrímskirkja verður böðuð mögnuðum ljósum og litum á sífelldri hreyfingu til miðnættis en gjörningurinn er hluti af dagskrá Vetrarhátíðar sem lýkur í kvöld. Höfundur ljósasýningarinnar er Marcos Zotes.
Vetrarhátíð í Reykjavík hófst síðastliðið fimmtudagsköld og hafa ótal viðburðir verið á dagskránni um alla borg. Þema ársins er Magnað myrkur.
Sýning Marcos Zotes var einnig upphafsatriði hátíðarinnar og því við hæfi að henni ljúki á sömu litfögru nótunum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






