Veröld/Fólk
| AP
| 12.2.2012
| 21:02
Dóttir Houston á sjúkrahús
Dóttir söngkonunnar Whitney Houston var flutt á sjúkrahús í dag. Ekki er ljóst hvers vegna Bobbi Kristina Brown þurfti á læknisaðstoð að halda en vinir stúlkunnar segja hana hafa verið undir miklu álagi og að sjúkrahúsheimsóknin tengist því.
Talsmenn slökkviliðsins í Beverly Hill segja að Bobbi Kristina hafi verið flutt frá hótelinu þar sem móðir hennar lést og á sjúkrahús fyrr í dag. Bobbi Kristina er átján ára gömul, dóttir Houston og fyrrverandi eignmanns hennar Bobby Brown.
Embætti dánardómstjóra hefur fengið lík Houston til rannsóknar. Ekki hefur verið gefið upp hvenær líkið verður krufið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






