Erlent
| AFP
| 12.2.2012
| 22:46
| Uppfært
23:26
Farþegi réðst á flugmanninn
Farþegi um borð í þotu á flugi milli Montevideo og Sao Paulo í Brasilíu réðst á flugmanninn. Annar farþegi kom flugmanninum til bjargar.
Atvikið átti sér stað í gær, laugardag. „Maður sem á við geðræn vandamál að stríða réðst á flugmanninn í flugstjórnarklefanum og vélin sveigði lítið eitt af leið af þessum sökum,“ segir Sebastian Torres, embættismaður frá Úrúgvæ sem var um borð í vélinni er atvikið átti sér stað. Eftir að hafa ráðist að flugmanninum sneri árásarmaðurinn aftur til sætis síns en þá reyndi annar farþegi að yfirbuga hann. Það tókst að lokum.
Vegna atviksins lenti vélin í Porto Alegre. Förinni var svo áfram haldið til Sao Paulo þar sem árásarmaðurinn var færður í hendur lögreglu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






